Krækjur
Archives
Upplýsingatækni og skólastarf 2003
laugardagur, apríl 03, 2004
Komin aftur
Jæja ég er að hugsa um að halda áfram að blogga svolítið. Frekar leiðinlegt að sjá ennþá jólasveina hér að neðan. Það hefur verið mikið að gera og ég færðist of mikið í fang í skólanum. Finn það núna að ég er alveg að koksa á þessu en ætla að reyna yfir páskana að redda öllu því sem eftir er - líklegt. Hvenær ætla ég þá að eiga tíma með fjölskyldunni??
Klara Mist er að koma norður í dag í páskafrí og Hrólfur Árni systursonur minn að fara til mömmu sinnar. Hann kom til okkar 28. febrúar þar sem hann varð fyrir miklu einelti í sínum skóla í borginni. Allt hefur gengið vel hjá okkur og hann hinn ánægðasti og vill ekki fara í borg Davíðs aftur.
Jæja best að fá sér morgunkaffi, gefa börnunum eitthvað í gogginn - fara svo út með hundana á göngu og setjast svo og horfa á Man. Utd. - Arsenal. Eftir það liggur leiðin til Akureyrar með drenginn í flug, taka á móti dótturinni og fara með mömmu á fyrirlestur.
Vona að veðrið verði eins frábært í dag og í gær þegar hitastigið fór uppí 16°c. Enda fór ég með mömmu út að ganga - við fórum of langt í fyrstu atrennu (hún er MS - sjúklingur) en þetta hafðist og hún þreytt en sæl.
Í bili....

laugardagur, desember 06, 2003
Lokin
Jæja kæru skólafélagar
Þá er þessu að ljúka. Sumt hefur verið erfitt annað ekki eins og gefur að skilja. Álagið er búið að vera mikið á mér allavegana. Hinir ýmsu verkir að láta að sér kveða og skrokkurinn að segja stopp. Svona er þetta líklega víða þegar maður ætlar sér of mikið.
Ég myndi gjarnan vilja blogga áfram en geri ekki ráð fyrir að þessi bloggsíða verði opin áfram.
Jólakveðja til ykkar allra og takk fyrir skemmtilegar umræður á spjallinu.
Bjarkey

sunnudagur, nóvember 23, 2003
Tónleikar- Brælublús
Á milli verkefna reynir maður að létta sér aðeins lífið. Í gærkveldi fórum við hjónin á útgáfutónleika hjá hljómsveitinni Roðlaust og beinlaust á Glaumbæ í Ólafsfirði. Þeir félagar eru skipverjar á frystitogaranum Kleifabergi frá Ólafsfirði og eru að gefa út sinn annan disk.
Auk þess gáfu þeir út fyrir jólin í fyrra eitt jólalag sem var mikið spilað og í gær frumsýndu þeir myndband við það lag. Nýji diskurinn er alveg frábær og textarnir meira blandaðir en á þeim fyrri. Tveir gestasöngvarar eru þau Sigrún Eva Ármannsdóttir og Sævar Sverrisson og sungu þau með hljómsveitinni í gærkveldi.
Auk þess kom fram ungur Ólafsfirðingur, Gísli Hvanndal sem er að gefa út disk með frumsömdu efni og kemur hann út nú eftir helgina. Þetta er jóladiskur og söng hann fyrir okkur tvö lög sem bæði voru alveg frábær.
Það sem er skemmtilegt við allt þetta er að diskarnir eru unnir og gefnir út hér í Ólafsfirði í nýju fyrirtæki sem ber heitið Mogo. Eigandi þess er Magnús G. Ólafsson sem lengi hefur verið viðloðandi tónlistarlífið, bæði í hljómsveitum og svo hefur hann kennt við tónskóla Ólafsfjarðar í mörg ár. Hann er kjölfestan í hljómsveitinni Roðlaust og beinlaust í landi og syngur einmitt eitt lag á nýju plötunni.
Björgunarsveitir landsins fá þennan disk til sölu, eins og þann fyrri og fá allan ágóða af sölunni. Markmið hljómsveitarinnar Roðlaust og beinlaust er að gefa allan ágóða af þessu starfi sínu. Jóladiskurinn sem seldur var í fyrra var seldur til ágóða fyrir Regnbogabörn.
Ég hvet alla landsmenn til að kaupa þessa diska og styrkja með því góð málefni. Hægt er að panta í gegnum netið og þar getið þið einnig fengið ýmsar upplýsingar um áhöfn Kleifabergs.
Gott í bili.

föstudagur, nóvember 21, 2003
Allt að gerast
Jæja nú eru líklega all flestir fjarnemar og aðrir að setja sig í próf stellingar. Ég á eftir að skila nokkrum verkefnum og þarf því að halda vel á spöðunum þessa daga sem eftir eru.
Suðurferðin gekk vel og Tenórinn var alveg frábær. Ég fór líka á tónleika með kór Verzló og kór Háskóla Reykjavíkur þar sem Margret Eir söng með þeim og Monika spilaði á hörpuna. Alveg frábærir tónleikar, einnig tóku þátt námsráðgjafar og starfsmenn þegar sungið var um sælgætislandið.

miðvikudagur, nóvember 12, 2003
Suðurferð
Nú er vetrarfrí í Barnaskólanum þar sem ég kenni og því ætlum við hjónin að leggja land undir fót og skreppa suður á land. Þar ætla ég að hitta börnin mín tvö, annað í Versló og hitt í annars konar vinnu. Ætlunin er síðan að fara í leikhús með þá yngstu á Dýrin í Hálsaskógi og við hjónin ætlum svo á sunnudagskvöldið að sjá Tenórinn í Iðnó.
Ég þarf einnig að skólast svolítið þar sem ég ætla að taka viðtal við feðgin sem bjuggu í torfbæ. Það er hluti af verkefnaskilum í Sagnfræði og sögunámi sem er frábær áfangi í umsjón Þorsteins Helgasonar. Þessu eigum við að skila sem vef og aðstoðar Torfi okkur við þá framkvæmd sem þess þurfum. Ég er mjög spennt að hitta fólkið og þau mig þannig að frásögnin ætti að vera skemmtileg. Þorsteinn hefur gert nemendum að vinna svona torfbæjarverkefni nú sl. ár og getið þið skoðað afraksturinn hér.
Þannig að nú legg ég tölvuna til hliðar þessa daga þar sem ég ætla að nýta tímann með fjölskyldunni og einnig að huga að jólagjöfum sem senda þarf erlendis.

sunnudagur, nóvember 09, 2003
Talblogg
Mér finnst þetta ferlega sniðugt þetta talblogg. Björn Valur, vinur minn, hefur verið að talblogga þegar hann hefur verið á sjónum og hélt ég að þetta væri voða mál.
En þar sem GSM er dýrt þá veit ég ekki hvort ég myndi vera til í að borga fyrir talblogg. Hugsanlega myndi maður blogga svolítið öðruvísi ef ættingjar eða vinir erlendis væru að kíkja á bloggið reglulega.